Félagið Vinir Indlands var stofnað haustið 2000 og starfar að ýmsum samvinnuverkefnum með sjálfboðaliðum félagsins Action India Charitable Trust í Tamil Nadu á Suður-Indlandi.
Helsta verkefni félagsins hefur verið að styðja munaðarlaus börn úr fátækum fjölskyldum til náms. Auk þess styður það við rekstur kennslumiðstöðva, reglulegum stuðningi við stúlknaheimili í Salem,og rekstri heimilis fyrir 20 munaðarlausa drengi í Thorapady, fyrir sunnan Chennai-borg.
Félagið er fjármagnað af styrktaraðilum; einstaklingum og fyrirtækjum og styrktarsjóðum. Auk þessa hafa félagar í Vinum Indlands staðið fyrir glæsilegum styrktartónleikum í nóvember síðast liðin 7 ár, þar sem landskunnir listamenn gáfu vinnu sína til styrktar málefninu.
Félagið hefur lagt metnað sinn í það að koma hverrri krónu til skila. Peningar sem gefnir eru í söfnun til okkar skila sér 100%. Ekki eru teknir peningar í skrifstofukostnað eða ferðakostnað. Sjálfboðaliðar dekka mest alla vinnu sem lögð er af hendi.
Vinir Indlands er vettvangur til þess að gera góðan ásetning að veruleika. Hægt er að styðja Vini Indlands á eftirfarandi hátt:
... með lifandi þátttöku í starfi félagsins - hafið samband við Sólveigu sol@islandia.is
... með greiðslum (frá 500-3000kr.) sem hægt er að taka mánaðarlega t.d. af greiðslukorti.
....með eingreiðslum fyrir 10.000kr. má hjálpa allt að 10 börnum að stunda nám.
Bankareikningur Vina Indlands er: 0582-26-6030.Kennitala er 440900-2750.
Stjórn félagsins:
Sólveig Jónasdóttir, formaður
Dagrún Ólafsdóttir, gjaldkeri
Melkorka E. Freysteinsdóttir
Gunnar Kvaran
Saga Kjartansdóttir
Arnheiður Símonardóttir
Sólveig Sörensen
Hildur Hálfdánardóttir
Kjartan Jónsson