Sumarið 2010 stendur menningamiðstöðin Múltikúlti fyrir ferð fyrir unga sjálfboðaliða til Indlands og Kenía. Dvalið verður í einn mánuð í hvoru landi. Kynningarfundur vegna ferðarinnar verður haldinn 17. mars, kl. 20.30 í Múltikúlti, Ingólfsstræti 8 og fyrra undirbúningsnámskeiðið dagana 27. og 28. mars. Þátttakendur muni kynnast landi og þjóð um leið og þeir taka þátt í verkefnum Vina Indlands og Vina Kenía sem unnin eru í samvinnu við þarlenda sjálfboðaliða. Á meðal verkefna sem unnin verða eru:
Að auki verður fræðst um menningu hindúa á Indlandi, þjóðgarðar Kenía heimsóttir, siglt út á Viktoríuvatnið o.fl. Sjálfboðliðarnir sitja margþætt námskeið, alls 30 klukkustundir, áður en lagt er af stað þar sem fræðst er um verkefnin og grundvöll starfsins. Ferðin kostar 330.000 krónur og felur sú greiðsla í sér 2 námskeið og aðra undirbúningsfundi sem nauðsynlegir eru vegna ferðarinnar, flugferðir, gistingu, akstur til og frá helstu stöðum þar sem unnið er að verkefnum, vegabréfsáritanir til Indlands og Kenía, morgunverð þegar gist er á hótelum, inngangseyri fyrir þjóðgarð og bátsferð á Viktoríuvatnið. Auk þess leggur Múltikúlti til tengingar við samstarfsaðila í Indlandi og Kenía og aðkomu að verkefnum þar. Ekki er innifalið: Bólusetning, matur (utan morgunverðar á hótelum), aðrar samgöngur, vasapeningar. Ef þátttakandi óskar eftir að hætta í miðri ferð mun Múltíkúltí endurgreiða það sem hægt er, þ. e. þann kostnað sem ekki hefur þegar verið ráðstafað og aðstoða þátttakanda við að sækja útlagðan kostnað eins og hægt er, breyta flugferðum og komast heim. Þátttakandi verður sjálfir að tryggja sig í ferðinni óski þeir þess, s.s. slysa, sjúkra og farangurstryggingar umfram þá lágmarktryggingu sem greiðslukortafyrirtæki v. kaupa á farmiða veitir. Hægt er að sjá blog af ferð sjálfboðaliða síðastliðið sumar á: kindverjar.blogspot.com Nánari upplýsingar: kjartan@islandia.is |


