http://www.multikulti.is/assets//Plakat.gif?m90
Fastir liðir (öllum opnir) í Múlti kúlti verða sem hér segir:
Þriðjudagar: kl. 20.15 – Tilverufundir. Þema þessara funda eru breytingar. „Hverju vil ég breyta hjá sjálfum mér?“ Tækifæri til að stíga skref til baka og skoða eigin tilveru út frá því hverju maður vill breyta. Lesinn er stuttur texti, fólk tjáir sig að vild og svo lýkur fundinum með slökun og íhugun.
Miðvikudagar: kl. 20.00 - Vinnufundir v. Múlti kúlti, Vina Indlands og Vina Keníu. Á þessum fundum eru rædd og skipulögð verkefni sem eru í gangi, auk þess sem fólk getur komið og kynnt sér starfsemina. Allir áhugasamir velkomnir.
Fimmtudagar: kl. 20.00 - Bridge-kvöld
Föstudagar: 12.15 - Hádegissúpa. Góðir gestir mæta í spjall. Þegar nær dregur jólum er stefnt að því að fá höfunda og þýðendur nýútkominna bóka til að lesa upp úr verkum sínum.
Fyrsta laugardag í hverjum mánuði – markaðsstemning í Múltí Kúltí á prúttmarkaði.
Sunnudaga: kl. 20.00 Kvennaskákklúbburinn ÓSK (opinn öllum konum).
Viðburðir framundan:
12. september (laugardagur), kl. 14.00: Opinn stjórnarfundur Vina Indlands
Ótímasett í september: Aðalfundur Vina Indlands
16. september (miðvikudagur), kl. 19.00: Kvöldverður og frásögn í máli og myndum frá ferð sjálfboðaliða til Indlands og Kenía í sumar. Endurtekið vegna fjölda áskorana.
26.-27. september: Sjálfboðaliðanámskeið I. Aðalleiðbeinandi verður Valerie McKernan, frá Skotlandi, samhæfir fræðsludeildar IHA (International Humanist Alliance). Verð: 10.000 kr. Námskeiðið fer fram á ensku.
Efni námskeiðsins:
· Aðstæður í heiminum í dag. Rýnt í lykiltölur
· Sjálfboðaliðastarf. Skilgreiningar skoðaðar. Hver er munurinn á hefðbundnu mannúðarstarfi (humaniterianism) og húmanísku hjálparstarfi (humanism).
· Starfsemi einstakra hópa og samtaka kynnt.
· Stutt kynning á IHA (International Humanist Alliance).
· Gagnkvæmni (reciprocity). Þetta mikilvæga hugtak í sjálfboðastarfi húmanista skoðað.
· Andofbeldi.
· Tengsl hins persónulega og þess félagslega.
· Tengslanet.
· Samantekt.
10. nóvember: Árlegir styrktartónleikar Vina Indlands – dagskráin auglýst síðar.
Ótímasett: Kynningarfundur v. sjálfboðaliðaferðar til Kenía og Indland í janúar og febrúar.
Í nóvember:
Sjálfboðaliðanámskeið II.
Fyrir þá sem hafa lokið sjálfboðaliðanámskeiði I. Farið dýpra í ýmis þemu sem fjallað er um í sjálfboðanámskeiði I. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, einstaklings- og hópverkefnum og leikjum. Verð: 6.000 kr. Leiðbeinendur: Kjartan Jónsson og Sólveig Jónasdóttir.
Efni námskeiðsins:
-Upprifjun á námskeiði I.
-IHA (International Humanist Alliance) - hugmyndir og skipulag.
-Tilgangur lífsins á 21. öld. „Ímynd mín af mér og skilgreining á sjálfum mér ræður hvað mér finnst mikilvægt og hvað það er sem hefur tilgang.“
-Mótstöður (persónulegar og félagslegar). Hvað kemur í veg fyrir að við breytum og gerum það sem þarf að gera?
-Að þróast frá hópi í tengslanet. Hvernig get ég aukið áhrif mín í heiminum?
-Meira um tengslanet.
Hópferð til Indlands 5. Janúar 2010 – hafið samband við Kjartan í 899 6570 eða kjartan@islandia.is