Starf Vina Indlands og Vina Kenía byggist á hugmyndafræði húmanista en þeir byggja á eftirfarandi hornsteinum: -Manneskjan er helsta gildið -Andofbeldi -Gegn öllu misrétti -Valfrelsi -Fjölbreytni í menningu og siðum -Þróun þekkingar umfram það sem gefið er Á þriðjudagskvöldum kl. 20.30 eru svokallaðir tilverufundir þar sem fólk ræðir ýmis þemu sem tengjast breytingum í lífinu. Fundirnir eru öllum opnir sem vilja vinna að jákvæðum breytingum í samvinnu með öðrum. |


