Múltikúlti hefur gefið út mynddisk (dvd) með heimsókn Dalai Lama til Íslands í fyrra. Diskurinn fæst í Múltikúlti, Ingólfsstræti 8, og kostar aðeins 1.990..
Miðvikudaginn, 10. febrúar, kl. 20.00, verður sýnd indverska kvikmyndin "Adhavan" sem tekin var upp að stórum hluta á Íslandi í fyrra. Aðgangur er ókeypis.
Að stuðla að auknum og bættum samskiptum fólks af mismunandi uppruna, innan Íslands og erlendis með ýmsu móti: Uppákomum eins og ljóðalestri og frásögnum, listasýningum, fjáröflunum fyrir ýmis verkefni.
Að styðja við samvinnuverkefni sjálfboðaliða á Íslandi og sjálfboðaliða í Kenía, Indlandi og öðrum stöðum þar sem áhugi er fyrir slíku. Sem dæmi um slík verkefni er stuðningur við menntun barna, herferðir gegn malaríu og fósturbarnaverkefni, þar sem einstaklingar styðja við framfærslu fátækra og munaðarlausra barna í þessum löndum.
Sala á vörum frá Kenía og Indlandi þar sem reynt er eftir fremsta megni að selja beint frá framleiðendum í anda „fair trade“ viðskiptahátta.
Gefa fólki kost á að kynnast framandi þjóðum og menningum með því að skipuleggja styttri og lengri ferðir til þessara landa, þ.á.m. sjálfboðaliðaferðir þar sem unnið er með hópum sjálfboðaliða í Indlandi og Kenía.
Að stuðla að og byggja upp sjálfboðaliðastarf í anda IHA (International Humanist Alliance).